Athugasemdir

1 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Gott????

Hanastél og svívirt þjóð

Nýju fötin keisarans Það vantar botninn í áramótaávarp forseta Íslands, eða skrumvarp Ólafs Ragnars Grímssonar til vanvirtar þjóðar sinnar eins og nær er að kalla þessa endemis ræðu hans á nýársdag árið 2009. 

Eftir að hafa sjálfur traðkað á lýðræðinu við forsetakjör að sovéskri fyrirmynd með aðstoð stuðningsmanna sinna og misnotkun fjölmiðla, galar fagurkerinn nú eins og hanastél af hæsta fílabeinsturninum um að leiða sína svívirtu þjóð til lýðræðislegrar uppreisnar.

Forsetaómyndin fer rétt með að almenningur krefst reikningsskila eftir nýjum siðferðisgrunni sem byggir á gagnsæi og ábyrgð, trausti, heiðarleika og trúnaði.  En því miður, slíkar dyggðir er ekki að finna í þeirri svínastíu sem hefur í dag hreiðrað um sig á Bessastöðum.  

Þjóðin vill ekki leiðtoga sem liggja eins og blindir grísir á spena gyltunnar. Þjóðarátak til sóknar eins grísinn á Bessastöðum kallar það, getur aldrei með Ólaf Ragnar Grímsson og demantsdrotninguna í forsæti orðið annað en endurtekning á skríplegri uppfærslu Hart í bak. 

Óheiðarleiki Ólafs Ragnars afhjúpaðist þjóðinni í hans fyrsta embættisverki forseta. Matthías Jóhannessen fjallaði um þetta í dagbók sinni 28. ágúst 1996: Vaknaði í morgun við það að ég var að yrkja lítið erindi fyrir munn ÓRGs sem margir nefna Óla grís í mín eyru og skiptir þá ekki máli hvort hann er orðinn forseti eða ekki. Íslendingar taka ekkert tillit til þess sín á milli, en liggja svo flatir fyrir sínum herra opinberlega. Ólafur veitti flotaforingja Bandaríkjanna fálkaorðuna um daginn og það þótti mörgum ótrúleg kaldhæðni guðanna. En vísan er svona:

Oss tókst að lokum að líta til stórra verka
sem létu bezt kempum eins og Agli sterka,
að hengja fálkaorðu á aðmírálinn
og útkljá þannig deilur um varnarmálin.
 

Dómgreindarleysið í forsetastól Íslendinga er með slíkum eindæmum að frá Bessastöðum var stórasta fjársvikamylla mannkynssögunnar boðuð af litlasta forseta heims eins og heilagt Guðspjall um nýjan og betri kapitalisma.

Rassasleikir Hafa ber í huga að þeir sem verma nú þjóðarheimilið á Bessastöðum er háskólagenginn stjórnmálafræðingur, áður fjármálaráðherra landsins, ásamt demantsdrottningu sinni sem er einn stærsti fjárfestir og skartgripasali heims. Dóttir forsetans vermir síðan einn af þremur stjórnarstólum Baugsfyrirtækisins Hagar sem er stærsta smásölufyrirtæki Íslendinga.

Skrum forsetans verður þannig enn annarlega, og sök hans að styðja við bakið á stærstu Ponzi fjársvikamyllu sögunnar enn óhugnarlegri, í ljósi þess að forsetinn og hans fólk má heita sérfræðingar í viðskiptum.

Það hlýtur að vera heimsmet að forseti sem hefur lítisvirt þjóð sína með þessum hætti, sitji áfram í embætti eins og ekkert hafi í skorist. Fordæmi fyrir slíku finnast varla nema hjá Mugabe lýðræðisböðlinum í Zimbabwe.

Það vantar botninn í ræðu forsetans, sem hefði að sjálfsögðu átt að vera afsögn og einlæg afsökunarbeiðni. Forsetinn fór eins og köttur um heitan graut hvernig hann gekk of langt en bað engan afsökunar á því að hafa svívirt þjóð sína. Útilokað er að Íslendingar verði teknir alvarlega á alþjóðavettvangi með svo spillta atvinnupólitíkusa í æðstu embættum eins og raun ber vitni.

Sjá einnig:

Forsetinn Ponzi Íslendingur ársins

Leppur forsetahjónanna?

Dorrit, ætlar þú að sitja aðgerðarlaus á meðan landsmenn þínir myrða þetta fólk?

Bók um forseta prýdd stolnum fjöðrum?

Ástþór Magnússon Wium, 1.1.2009 kl. 17:25

2 Smámynd: Ingunn Guðnadóttir

Sæll Ástþór.

Ég gæti ekki verið minna sammála þér. Ég er alveg viss um það, að alveg sama hvað herre Ólafur hefði sagt, eða ekki sagt.

Þú hefðir fundið því allt til foráttu. Hann er jú í sætinu sem þú hélst að fólkið vildi þig í.

En raunin varð önnur.

Ingunn Guðnadóttir, 2.1.2009 kl. 05:48

3 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Sæl Ingunn og Gleðilegt ár.

Nei þetta er ekki rétt hjá þér. Það sést best á þeirri staðreynd að síðustu daga fyrir kjördag 1996 hvatti ég marga til að kjósa Ólaf því við friðarsinnar vorum svo hræddir um að hæstaréttardómarinn, sem við töldum málpípu Sjálfstæðisflokksins og hans hernaðarstefnu, kæmist í forsetaembættið. Það hafði myndast slík keppni milli tveggja manna að þetta var mjög tvísýnt. En Ólafur brást okkur, hann sveik öll loforðin sem hann hafði gefið mér í beinum sjónvarpsútsendingum um að taka upp friðarmálin ef hann yrði kjörinn. Þetta kom mjög á óvart því Ólafur hafði tekið þátt í friðarstarfi áður en hann var kjörinn forseti.

Ádeila mín á sitjandi forseta er ekkert persónulegt, þetta er ádeila til að vekja fólk til umhugsunar um þær breytingar sem væri hægt að gera á embættinu til að Virkja Bessastaði.

Ástþór Magnússon Wium, 2.1.2009 kl. 13:48

4 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Ástþór er ekki kominn tími til að þú hættir þessum endalausu leiðindum þú hefur engan stuðning ekki einu sinni hjá mótmælendum sem fagna öllum sem eru á móti ríkinu Ja nema þér vilja enginn tengsli við þig afhvelju skyldi það vera ??

Jón Rúnar Ipsen, 2.1.2009 kl. 16:30

5 Smámynd: Dunni

Hef aldrei nennt að eiga í orðastað við Áastþór síðan ég reyndi viðskipti við myndiðjuna Ástþór á 8. áratugnum.  Myndirnar sem ég sótti í framköllun voru ónýtar og Ástþór lofaði að bæta mér skaðan.

Ég vissi ekki þá að hann ætlaði að bæta mér skaðan eftir að hann yrði forsti.  Hefði heldur aldrei tekið það í mál því ég veit að hann verður aldrei forseti.  Hann er einfladlega ekki þess verður.

Má ég þá biðja umBaldur í Vara. Hann reynir að standa við orð sín. 

Dunni, 3.1.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Guðnadóttir

Höfundur

Ingunn Guðnadóttir
Ingunn Guðnadóttir
"Skrifum af viti og án þess að skíta út náungann" Það hlýtur að vera gott mottó.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 934

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband